Hver er rekstrarvandi Listasafns ASÍ?

„Rekst­ur Ásmund­ar­sals hef­ur verið að þyngj­ast veru­lega und­an­far­in ár eft­ir að Alþingi ákvað að draga veru­lega úr fjár­veit­ing­um til Lista­safns ASÍ. Hvorki Safna­sjóður né Reykja­vík­ur­borg vilja gera svo­kallaða rekstr­ar­samn­inga, held­ur veita styrki í ein­staka viðburði,“ seg­ir Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ. 

Hér eru tekjur og gjöld Listasafns ASÍ fyrir 2014, tekinn úr skýrslu ofangreinds forseta sambandsins. 

Listasafn ASÍ yfirlit

 

Lítið kann ég að klóra mig fram úr slíku, en les þó úr honum að ASÍ skaffar til rekstur síns listasafns 9.797.033 krónur sem er rétt um 97 krónur per félagsmann á ári.(!)Ríkið greiðir til safnsins 4.050.000 og styrkur frá Menningarborginni er 500.000 kall.

Aðrar tekjur eru vegna “Vinnustaðasýninga” upp á 7.101.044.
Samtals eru tekjur safnsins 21.448.077 krónur en gjöldin á móti eru 20.489.517 sem skilar safninu 958.560 í “hagnað” á árinu 2014.
Nema að eitthver undarleg skuld við Reykjavíkurborg upp á 15.846.303 bankar upp á, með rúma milljón í vaxtagjöld, sem þurrka burt mest allan hagnaðinn. Hvaða lán er þetta sem móðurfélagið lætur listasafnið burðast með?
Og nú er sagt að forsendur séu brostnar fyrir rekstrinum. En þá er lag að skoða rekstrarreikning móðurfélagsins ASÍ varðandi listasafnið.
Samkvæmt lögum sambandsins skal það leggja til listasafnsins 3,7% af tekjum. Á Samstæðureikningi 2014 voru skatttekjur ASÍ (það er gjald frá aðildarfélögum) 264.784.665 krónur. En með styrkjum og “öðrum tekjum” voru heildartekjur sambandsins 870.597.226 krónur.
Í lögunum (45. grein) stendur: Af tekjum ASÍ skal leggja 3,7% í sjóð Listasafns ASÍ, en ekki er minnst á að það séu þá aðeins skatttekjurnar. 3,7% af 870.597.226 er dálítið meira en 9.797.033 krónur eða um 32.212.097 krónur. Og það er upphæð sem ASÍ ætti að mínu viti sannarlega að láta ganga til listasafnsins og þarf þá engra annara styrkja við til að reka safnið með myndarbrag.
En hvar í plöggum ASÍ er samþykki fyrir því að reikna 3,7% hlut listasafnsins aðeins út frá tekjum frá aðildarfélögum, en ekki heildartekjum? Spyr sá sem ekki veit.
En ókei.
Nú kvartar framkvæmdastjóri ASÍ yfir styrkjaleysi frá ríki og borg og kannski hafa þessir aðilar kippt út sínum styrkjum? Kannski var í dílnum vegna Marshallhússins, að borgin myndi draga saman seglin annarsstaðar? Og peningar ríkisins eru farnir úr landi. Ókei. Þá situr ASÍ uppi með heildarpakkann fyrir rekstur Listasafns ASÍ, sem er 21.5 milljón cirka. Ef við deilum nú þeim ósköpum niður á hina 100.000 félagsmenn sambandsins, þá lenda á ári hverju heilar 215 krónur á herðum hins almenna launþega, við að halda uppi sómasamlegri starfsemi utan um þeirra ómetanlegu safneign. Og það eru brostnar forsendur að mati Gylfa Arnbjörnssonar forseta sambands sem veltir hundruðum milljóna á ári.


mbl.is Endurskoði sölu á Ásmundarsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nú ekki ónýtt að eiga mynd þegar maður á ekki til orð.

Fullveldið2


mbl.is Ólafur aftur í forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir vilja kannski líka þennan?

Eldgamalt málverk frá upphafsárum bónuss, minnir mig. Listamanninum þótti einhver daufur fnykur af græðgi stafa frá þessum besta vini öreigans með ómegðina. En það var vitaskuld della þá. Framhaldið er skrásett.

 

Svínið mitt

 


mbl.is Hagar halda Bónusgrísnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skyggnigáfa

Bloggarinn þurfti enga sérstaka skyggnigáfu þegar hann gaf sér þessa fögru framtíðarsýn í upphafi árs.

 

2015.jpg


mbl.is Pissa í hvert skúmaskot á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sprettur líf af skítnum sem við skiljum eftir.

Geysir
mbl.is Ísland er að verða útjaskað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýð(v)eldi


mbl.is Lýðveldið var ekki sjálfgefið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið eilífa alþýðuleikfang

Þessi frétt minnti mig á portrett sem birtist fyrir löngu í hinu fyrirfram fallít tímariti Krónikunni. Þá var spekúlerað um endurkomu Jóns í pólítíkina sem ekki varð. En vissulega má trekkja hann upp aftur og aftur!Jonnibal
mbl.is „Hef fengið nokkra uppreisn æru“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Makleg málagjöld

makleg_ma_769_lagjo_776_ld.jpg
mbl.is Aftöku frestað á síðustu stundu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru börnin?

Klerkurinn G
mbl.is Skammarleg og hneykslanleg brot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rifjaðu þetta upp með Gunna

rifja_upp_me_gunna_1210522.jpg
mbl.is Gleðigangan 2013 í myndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband